Færslur: 2015 Mars05.03.2015 22:59Dalvik i morgun Bræla á miðunum
Skrifað af Þorgeir 05.03.2015 14:38Mikil umsvif i Neskaupstað i dagMikil umsvif hafa verið á bryggjunum i Neskaupstað i morgun loðnuskip að koma og fara nánast öll með fullfermi af Loðnugullinu myndirnar hér að neðan sendi mér Sigurjón Mikael Jónuson Skipverji á Birting NK 124 og kann ég honum bestu þakkir fyrir afnotin Mikil áhersla er lögð á vinnslu hrogna úr förmum loðnuskipanna sem landa nú hvert af öðru.
Í Neskaupstað er lokið við að vinna hrogn úr farmi Bjarna Ólafssonar AK
í gærkvöldi og þá hófst vinnsla úr loðnu úr Berki NK.
Síðan bíða Beitir NK og Birtingur NK löndunar í Neskaupstað og Hákon EA er að landa frystri loðnu.
Tiltölulega hátt hlutfall þeirrar loðnu sem veiðst hefur í grennd við Vestmannaeyjar er karlkyns
en hlutfall kvenloðnu er hærra í þeim afla sem fengist hefur á Faxaflóa.
Færeyska skipið Finnur fríði landaði 200 tonnum í hrognavinnslu í Helguvík í nótt og fékkst sú loðna í Faxaflóa.
Eins er Polar Amaroq væntanlegur til Neskaupstaðar í dag með 700 tonn sem fengust í flóanum.
Veðurútlit fyrir sunnan land og vestan er ekki gott næstu daga og því munu skipin sem eru að landa fyrir austan sigla norður fyrir land að löndun lokinni.
Munu þau freista þess að finna veiðanlega loðnu þar. Bjarni Ólafsson er þegar lagður af stað og verður fróðlegt að frétta hvort hann rekst á loðnu norðurfrá.
Skrifað af Þorgeir 05.03.2015 13:19Bjartur NK landar á Dalvik i morgunnIsfisktogarinn Bjartur Nk Landaði á dalvik i morgun en hann er sem kunngt er i togararalli Hafró Aflinn var um 30 tonnum uppistaðan Þorskur ásamt einhverju að öðrum tegundum sem að oftast þvælast með en skipið birjaði fyrir austan land og heldur út i dag að sögn skipstjórans Jóhanns Arnar Jóhannssonar
Skrifað af Þorgeir 04.03.2015 21:47Brælu stopp i EyjumNú undir kvöld voru flest uppsjávarskip flotans annaðhvort kominn i land eða á landleið þar sem að litið af loðnu veiðist i brælunni sem að búinn er að vera á suðvestur miðum i allan dag og er ekki útlit fyrir að þetta dúri neitt fyrr en eftir helgi ef að spáin gengur eftir Stórvinur siðunnar Óskar Pétur Friðriksson ljósmyndari Eyjafrétta sendi mér nokkrar myndir af flotanum sem að er i Eyjum og kann ég honum bestu þakkir fyrir Afnotin látum myndirnar tala sýnu máli
Skrifað af Þorgeir 04.03.2015 07:53Hafró rall um borð i Bjarti Nk 121Þann 26 Feb var þessi frétt á heimasiðu SVN
Meðfilgjadi myndir tók Jóhann Örn Jóhannsson skipstjóri á Bjarti Nk 121
og kann ég honum bestu þakkir fyrir afnotin
Síðdegis í dag eða í kvöld heldur togarinn Bjartur NK í sitt 25. togararall. Enginn togari hefur jafn oft tekið þátt í ralli,
en Ljósafell SU kemur næst og er að hefja sitt 22. rall. Togararall hefur farið fram á hverju ári frá 1985 og er það mikilvægur þáttur í árlegu mati á stofnstærð botnfiska við landið.
Hafrannsóknastofnun leitaði eftir tilboðum til þátttöku skipa í rallinu og varð niðurstaðan sú að auk Bjarts og Ljósafells munu hafrannsóknaskipin tvö,
Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson, annast rallið að þessu sinni. Löngum hafa svonefndir Japanstogarar verið leigðir til þátttöku í rallinu en Bjartur og Ljósafell eru einmitt af þeirri gerð.
Árin 1985-1995 voru fimm togarar teknir á leigu til að sinna rallverkefninu, 1996-2006 voru þeir fjórir og árin 2007-2013 þrír auk rannsóknaskipa.
Í fyrra og í ár eru togararnir hins vegar tveir eins og fyrr greinir auk rannsóknaskipanna. Bjartur tók ekki þátt í rallinu í fyrra.
Að sögn Jóhanns Arnar Jóhannssonar skipstjóra á Bjarti mun skipið toga á 184 fyrirfram ákveðnum togstöðvum á svæðinu frá Hornafirði að Eyjafirði.
Ljósafell mun síðan toga úti fyrir suðurströndinni að Snæfellsnesi, Árni Friðriksson frá Snæfellsnesi að Horni og Bjarni Sæmundsson frá Horni að Eyjafirði.
Gert er ráð fyrir að verkefnið taki 16-18 daga að sögn Jóhanns og Bjartur komi til löndunar einu sinni á meðan á rallinu stendur.
Skrifað af Þorgeir 03.03.2015 22:58Lif og fjör á loðnumiðunum i dagÞað var mikið um að vera á loðnumiðunum i dag bátarnir að kasta og sumir að fá góð köst aðrir minna og enn aðrir náðu að fylla á stuttum tima enn aðrir fengu gefins þannig að i heldina var þetta nokkuð góður dagur hjá flestum en nú er spáð suðvestan stormi á veiðisvæðinu útaf Reykjanesi svo að ekki er mikil von um veiði næstu daga eitthvað virðist þó vera meira af karlkynsloðnu á ferðinni við suðurströndina og virðist vera að kvenloðnan sem að er við Reykjanes sé á siðustu metrunum fyrir hrygningu en hérna koma nokkrar myndir sem að Sigurjón Mikael Jónuson skipverji á Birting Nk 124 sendi mér nú i kvöld og kann ég honum bestu þakkir fyrir afnotin á myndunum
Skrifað af Þorgeir 03.03.2015 20:03Rannsókanrskipin Poseidon og Neptune
Skrifað af Þorgeir
|
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 564 Gestir í dag: 15 Flettingar í gær: 1858 Gestir í gær: 51 Samtals flettingar: 1061838 Samtals gestir: 50969 Tölur uppfærðar: 22.12.2024 06:42:19 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is